Saudí Arabía

Ég skellti mér til Saudi Arabíu í Janúar. Fór með 13 krökkum úr MIT Energy Club í boði Saudi Aramco sem er ríkisrekna olíufyrirtækið í Saudí eða Ríkidæminu eins og Saudíar kalla landið sitt oft. Þetta var ótrúlega áhugaverð og skemmtileg ferð. Ég lærði mjög mikið um olíuiðnaðinn og fékk innsýn inn í daglegt líf í Saudí Arabíu.

 

Ég valdi nokkrar myndir úr ferðinni og setti hér.

 

Annars er bara allt gott að frétta. Ég er á fullu í skólanum því að útskrift nálgast óðfluga og enn er margt ógert. Helstu verkefnin þessa dagana eru að vinna í mastersritgerðinni minni, ákveða hvort að ég ræð við að vera í energy economics, finance, seminar in technology and policy og vera hlustandi í energy policy tímunum á þessari önn og skipuleggja MIT Energy Conference sem er í apríl.

 

Um næstu helgi ætla ég samt að taka mér frí og fara til Tremblant í Kanada og skella mér á skíði með TPP vinum mínum. Ég á líka afmæli næsta laugardag og mér finnst tilvalið að eyða afmælisdeginum uppí í fjalli með góðu fólki.

 

Á mánudaginn eftir tvær vikur þá kemur Óli Steinn aftur. Eitt er víst að alltaf verður ákaflega gaman þá.

 

Kær kveðja frá Boston,

Hidda 

Hidda
Said Hidda
Sun, 10 Feb 2008 17:32

Nýárskveðja


 

Gleðilegt nýtt ár!

 

Megi gæfan brosa við ykkur á nýju ári og færa ykkur gleði og frið.

 

Kær kveðja,

Hidda

 

Hidda
Said Hidda
Mon, 14 Jan 2008 23:59

Maryland og D.C.

Fórum í ferðalag...

Heimsóttum Frederick mafíuna

Fórum á úrslitaleikinn í bandarísku knattspyrnudeildinni

 

Og heimsóttum Abraham Lincoln

Núna erum við komin heim og erum södd og sátt eftir vel heppnaða Þakkargjörðarhátíð.

Kær kveðja frá Boston,

Hidda 

Hidda
Said Hidda
Sun, 25 Nov 2007 19:41

31. október

31. október sátum við úti á tröppum með heitt te í bolla, kertaljós og fötu fulla af nammi og tókum á móti litlum "trick or treaters".

Kósí kvöldstund í Cambridge.

Kær kveðja,

Hidda

Hidda
Said Hidda
Sat, 3 Nov 2007 20:55

Halloween

Mér finnst tíminn í kringum Halloween mjög skemmtilegur. Við Óli fórum um seinustu helgi niður á City Hall Plaza og sáum afrasktur mikillar graskers útskurðarhátíðar. Þarna var heljarinnar turn með mörg hundruð graskerjum með alls konar útskurði.

Í gærkvöldi fórum við svo í tvö Halloween partý. Vorum klædd sem Horatio Cane og Calleigh Duquesne úr CSI Miami þáttunum. Óli sagði one-linera allt kvöldið og tók sólgleraugun af og setti þau á sig oft og mörgum sinnum. Ég var klædd eins og Calleigh og útbúin alls konar CSI dóti eins og töngum, hönskum, fingrafarapúðri o.s.frv. Alltaf gaman að vera í búning.

Svo á miðvikudaginn er Halloween hátíðin sjálf. Við erum ekki búin að ákveða hvað við gerum þá, en vonandi mun það hafa eitthvað að gera með "trick or treat".

Kær kveðja,

Hidda

 

Hidda
Said Hidda
Sun, 28 Oct 2007 19:10

Úr garðinum

Hidda
Said Hidda
Sun, 16 Sep 2007 19:48

Fann Íslending

Var stödd á bar á háskólasvæðinu á föstudaginn. Höfðum farið nokkrir vinir og fengið okkur einn kaldann eftir vinnu. Þegar klukkan var farin að ganga kvöldmatarleytið var garnagaulið orðið nokkuð hávært þannig að ákveðið var að halda í matarleit.

Þegar við stöndum upp verður svoldil töf á brottför því að á sjónvarpsskjánum var Red Sox kastarinn var um það bil að fara að kasta Yankees mann út. Þar sem ég stend við borðið og er að horfa á leikinn heyri ég á samtal tveggja einstaklinga á næsta borði. Ungur maður er að segja konu einni frá því hvernig að Ísland liggi beint ofaná Atlanshafshryggnum og sé að liðast í sundur.

Þrátt fyrir að ég heyri ekki greinilegan íslenskan hreim þá hugsa ég með mér, það á enginn í svona samræðum nema að hann sé íslenskur. Ég vippa mér því upp að fólkinu og segi skýrt á íslensku, "Sæll og blessaður, ég heiti Hidda." Ungi maðurinn lítur lítur forviða upp, skælbrosir svo og segir, "Hi, are you from Sweden?" Ég svara "Nei, ég er frá Íslandi." Hann, "Sweden?"

Upp hófst hinn skemmtilegasti miskilningur en mér tókst að lokum að koma því á framfæri að ég væri frá Íslandi og fékk að vita að þarna væri mættur Siggi Örn, nýr meistaranemi í Media Labinu í MIT. Hann átti bara svo alls ekki von á að hitta Íslending og var svo niðursokkin í enskar samræður að það tók hann smá tíma að skipta yfir í íslenskuna.

Alltaf gaman að hitta Íslendinga á förnum vegi.

Kær kveðja,

Hidda

 

 

 

Hidda
Said Hidda
Sun, 16 Sep 2007 18:36

Síðbúin óvænt afmælisgjöf

Ég kom Óla Steini á óvart um seinustu helgi. Hann hafði bara fengið þrítugsafmælisgjafir sem hann valdi sjálfur þannig að ég ákvað að gefa honum eina gjöf til. Síðbúna og alveg óvænta. Ég pantaði flugkennara og klukkutíma flug í Tomahawk tveggja sæta vél.

Óli vissi ekkert hvað hann væri að fara að gera fyrr en ca 5 mín áður en við vorum komin á völlinn og varð mjög hissa þegar ég sagði honum að hann stæði til. Flugtíminn heppnaðist rosa vel og Óli fékk að keyra vélina á vellinum, taka á loft og fljúga allan klukkutímann. Það eina sem flugkennarinn gerði var að lenda vélinni og kannski aðeins að segja Óla flugmanni til.

 

Eftir flugið fórum við svo á kaffihús í hádegismat og síðan á ströndina þar sem við eyddum eftirmiðdeginum. Algjörlega frábær sunnudagur.

 

En nú er ég orðin ein í kotinu. Óli fór í loftið fyrir 9 mín og ég sé hann víst ekki aftur fyrr en í október. Þá er bara að byrja að telja niður dagana.

 

Kær kveðja,

Hidda

 

Hidda
Said Hidda
Fri, 31 Aug 2007 18:43

Steikjandi hiti

Nú fyrr í vikunni var svoldið eins og haustið væri komið til Boston. Hitinn hékk á milli 15 og 21 gráðu celcius og það var hægt að sofa aftur með sæng í staðinn fyrir lak. En svala loftið entist ekki lengi og nú er sumarið komið aftur með krafti. Í gær var 30 stiga hiti og núna er 35 stiga hiti úti.

 

Við Óli skelltum okkur í smá körfubolta áðan með Red Sox körfuboltanum okkar en hitinn og rakinn var svo mikill að við náðum bara að spila asna í um hálftíma áður en við lákum niður.

 

Ég var aldrei búin að skrifa um þennan ágæta körfubolta sem Óli vann í Six Flags. Það var skondið þegar að því kom að  velja verðlaun í körfuboltaleiknum. Í básnum var hægt að velja Red Sox (hafnaboltalið Boston), Patriots (ameríska fótboltalið New England), Yankees (hafnaboltalið New York) og svo New York Knicks (körfuboltalið NY) körfubolta en ekki Boston Celtics bolta. Það er greinilegt að körfubolti er ekki í hávegum hafðum í borginni eftir nokkur slæm ár í NBA. Vonandi breytist það samt í vetur með leikmönnunum sem Celtics voru að fest kaup á.

 

Kær kveðja úr hitanum,

Hidda 

 

Hidda
Said Hidda
Sat, 25 Aug 2007 18:26

Sannkallaðir djassgeggjarar

Við erum músikalskt par - fórum á Jasshátíð í Newport, Rhode Island síðastliðinn laugardag. Leigðum okkur bíl, pökkuðum niður útleigustólunum okkar sem við keyptum á góðu verði í Target fyrr í sumar, teppi, sólarvörn, smá nesti og héldum af stað suður á bóginn.

 

Á leiðinni höfðum við áhyggjur af því að stólarnir okkar væru of háir og okkur yrði meinaður aðgangur með þá við innganginn. Það stóð nefnilega á heimasíðu hátíðarinnar að það mætti ekki koma með neitt sem skyggði á útsýni annarra hátíðisgesta og stólar mættu einungis vera 30 tommu háir en stólarnir okkar voru 35 tommu háir. Hæð þeirra var meira að segja vel merkt á miða framan á stólapokunum. Til að komast í kringum þetta vandamál var mér búið að detta í hug að skjótast aftur í Target og kaupa minni stóla en þar sem að við erum nú ung og til í að lifa á brúninni þá tókum við sjénsinn, snérum bara miðunum á stólapokunum við og létum slag standa.

 

Við vorum því tilbúin í slaginn þegar við mættum að inngönguhliðinu, miðann snéri afturábak og við héldum á stólunum þannig að þeir drægu sem minnsta athygli að sér. Við skyldum komast inn með þá.

 

Þegar á hólminn var komið kom hins vegar í ljós að allar okkar áhyggjur og varúðaráðstafanir höfðu verið óþarfar. Við inngönguhliðið hafði enginn starfsmaður hinn minnsta áhuga á stólunum og þegar inn á svæðið var komið tókum við eftir því að fullt af fólki var með miklu stærri og fyrirferðameiri stóla en við.

 

Við gerðum grín að okkur allan daginn fyrir óþarfa stólahysteríuna.

Hér má sjá Óla að njóta lífsins í "háu" stólunum

 

En tónlistin var frábær. Það voru þrjú svið í gangi og við sáum meðal annars Dave Brubeck spila en hann er djassgeggjari á níræðisaldri þannig að það fer að verða seinasti séns að sjá hann spila "live" á sviði. Ég mæli svo sannarlega með þessari árlegu tónlistarhátíð fyrir alla djassundendur.

Dave við píanóið

 

Kær kveðja frá Boston,

Hidda

 

 

 

Hidda
Said Hidda
Thu, 16 Aug 2007 21:10

Six Flags New England

Við Óli skelltum okkur í skemmtigarðinn Six Flags síðastliðinn laugardag. Óli fór í fyrsta sinn í almennilegan rússíbana og kunni vel að meta. Kannski ekki alveg jafn vel og ég kann að meta rússíbana, en það er bara út af því að ég er algjör rússíbanaskvísa. Síðan skelltum við okkur í vatnspartinn af garðinum þar sem við skemmtum okkur í alls konar vatnsleikjum og slöppuðum aðeins af í sólinni.

Í lok dags fórum við svo í leikjabásana og Óli Steinn vann Kalla Kanínu bangsa (handa mér) og körfubolta. Svona alveg eins og í amerískri unglingamynd. Ég var alveg hæst ánægð með minn mann og bar bangsann stolt og skælbrosandi í annarra hendinni og leiddi Óla með hinni.

Kær kveðja,

Hidda

 

Hidda
Said Hidda
Tue, 7 Aug 2007 02:56

New York City

 

Í tilefni af 5 ára afmæli okkar Óla og þrítugsafmæli hans ákváðum við skötuhjúin að skella okkur til New York City um seinustu helgi. Yndislegir fimm dagar, fórum á tvö Broadway show og jassklúbb, horfðum á upptöku The David Letterman Show, röltum um söfn, borðuðum góðan mat og versluðum.

 

 

Kær kveðja,
Hidda

 

 

Hidda
Said Hidda
Sat, 4 Aug 2007 03:21

Garðurinn

 

Þessa dagana njótum við Óli til hins ýtrasta uppkerunnar af hindberjum sem flæðir frá garðinum okkar. Nokkuð af káli er einnig tilbúið til tínslu ásamt kryddjurta sem meðal annars verða notaðar til eldamennsku á nýsjálensku lambi í kvöld. Mmmm ferskt grænmeti og ávextir...

 

Kær kveðja,

Hidda 

 

 

Hidda
Said Hidda
Sun, 1 Jul 2007 19:14

Kosningaréttur


Haldiði að ég hafi ekki bara drifið mig á kosningamálaskrifstofuna hér í Cambridge og skráð mig sem kjósanda.

Nú er ég tilbúin fyrir allar kosningar sem verða haldnar í Cambridge, Massachusetts eða USA. Hvert atkvæði skiptir máli...

 

Kær kveðja,

Hidda

 

 

 

Hidda
Said Hidda
Fri, 29 Jun 2007 14:36

Carmel and San Francisco

Við Óli Steinn skelltum okkur til Kaliforníu í 10 daga. Við eyddum viku hjá Evu og co í Carmel og svo vorum við þrjár nætur í San Francisco. Yndisleg ferð - góður matur, gott fólk og góð skemmtun. 

 

Við þökkum Evu og fjölskyldu kærlega fyrir okkur.

 

Myndir með kommentum má sjá hér.

 

Kær kveðja,

Hidda 

Hidda
Said Hidda
Wed, 27 Jun 2007 04:41

Hjólaferð

 

Hjólaferðin var einstaklega vel heppnuð. Hjólaðir voru 200 km í mjög góðu hjólaveðri - ekki of heitt og ekki of kalt og engin rigning. Við keyrðum upp til New Hampshire á föstudagseftirmiðdag og þá fórum við nokkur í minigolf. Við lékum 18 holur á Hobo minigolfvellinum með glæsibrag og gamni.

Um kvöldið spiluðum við spil og drukkum bjór en fórum samt snemma að sofa því að það var stór dagur framundan. Næsta dag var vaknað kl 6:30 og keyrt í klt norður á bóginn til Lancaster, New Hampshire þar sem sest var á hnakkana og hjólað af stað.

Við hjóluðum fram eftir degi eftir The Conneticut River, Vermont megin, stoppuðum nokkrum sinnum og nærðumst og hvíldum okkur og gistum síðan seinni nóttina á mjög fallegu gistiheimili sem heitir "The Glen" og er við 1st Conneticut Lake. The Glen rekur 82 ára kona að nafni Betty sem er búin að reka þetta áratugum saman og allt er þetta mjög heimilislegt. Á einu borðinu lá óklárað 500 púsla púsl sem við settumst niður við og rumpuðum af á no time. Í kvöldmat voru Ham and beans með cornbread - amerískt og gott.

Á sunnudaginn vöknuðum við kl 7 og haldið var af stað kl 8:30 heim á leið. Við hjóluðum aftur tilbaka með smá útúrdúr og vorum komin á áfangastað um þrjúleytið, þreytt og sátt eftir vel heppnaða ferð.

 

Sem sagt frábær helgi og svo í dag kom hann Óli - vei vei vei!

 

Kær kveðja frá Boston,

Hidda

 

Hidda
Said Hidda
Sat, 9 Jun 2007 23:09

Löng helgi

Á laugardaginn fór ég til Walden Pond með Earl vini mínum (sjá mynd). Við eyddum deginum á ströndinni, lásum og sváfum til skiptis og svo stakk ég mér aðeins í vatnið til að kæla mig. Mjög afslappaður dagur.

 

Á sunnudaginn tók ég svo lest til Rhode Island þar sem vinkona mín var að halda grillveislu. Hún býr með kærastanum sínum í stóru húsi með fínum bakgarði með sundlaug og allt. Þau voru einnig búin að leigja pool borð fyrir partýið þannig að það var nóg að gera. Við spjölluðum og lékum okkur allan daginn, borðuðum svo grillmat og horfðum á flugeldasýningu sem var skotið upp í nágrenninu í tilefni af minor league hafnaboltaleik. Seint og um síðir fékk ég svo far heim með annarri vinkonu minni. Góður dagur.

 

Í gær var svo komið að því að klára að gróðursetja allt í garðinum. Allt er nú komið niður: tómatar, baunir, gúrkur, kál, rúkkóla, eggaldin, kryddplöntur, jalapenjo o.s.frv.

 

Og síðan kemur Óli kemur eftir 6 daga - ekki það að ég sé að telja...

 

Langar helgar í góðu veðri eru yndislegar.

 

Kær kveðja,

Hidda

 

 

Hidda
Said Hidda
Tue, 29 May 2007 14:57

Meiri þjálfun

 

Ég byrjaði daginn í dag á hjólatúr. Hjólaði "The Minute Man Trail" sem er um 18 km. Túrinn allt í allt var um 45 km. Þetta er stígur sem var malbikaður eftir gömlum járnbrautarteinum sem voru eitt sinn aðalsamgönguleiðin til Bedford - bæjarins sem stígurinn endar í. Mjög fallegur stígur, trjáivaxin og skemmtileg hjólaleið. Veðrið er líka svo gott í dag. Núna er 27° C úti en sem betur fer var aðeins kaldara í morgun þannig að það var mjög fínn hiti hjólahiti. Ég er að reyna að hjóla sem mest þessa dagana svo að ég geti nú eitthvað í hjólaferðinni miklu sem er eftir einungis 8 daga. Þar er planið að hjóla 100 km á dag í tvo daga þannig að 45 km er bara smá upphitun fyrir það...

 

Í öðrum fréttum er það að ég er búin í öllum kúrsum og er núna að einbeita mér að mastersverkefninu. Línurnar í því eru aðeins að skýrast og vonandi kem ég rosa miklu í verk í sumar.

 

Og síðan kemur Óli eftir 10 daga - þá verður gaman!

 

Kær kveðja,

Hidda 

 

Hidda
Said Hidda
Thu, 24 May 2007 21:28

Eurovision undankeppni

Þar sem að ég er þekkt fyrir að hafa skoðanir á gengi Íslands í Eurovision þá ákvað ég að skella inn einni færslu eða svo. Hvers konar fyrirkomulag er það eiginlega þegar einungis Austur Evrópuþjóðir komast áfram í úrslit? Það verður að segjast að lagið okkar var ekki svo sérstakt í ár þannig að það ég hefði alveg verið sátt bara einhver af þeim níu Vestur Evrópuþjóðum sem tóku þátt í undankeppninni hefði komist áfram, en hvernig í ósköpunum á Vestur Evrópa að eiga séns á að komast áfram þegar hlutfallið í undankeppninni er svona:

ÉG MÓTMÆLI!

Hidda

Hidda
Said Hidda
Thu, 10 May 2007 23:23

Grillveisla

Það er búið að vera frábært veður síðastliðna daga. Í tilefni þess þá héldum við vinirnir smá grillveislu í skólanum í hádeginu í gær. Dan á þetta fína ferðagasgrill sem hentar einstaklega vel til grillveislna sem þessarar. Þarna voru grillaðir hamborgarar og pulsur og svo var legið í grasinu á meltunni. Yndislegt hádegi...

Kær kveðja,

Hidda

 

Hidda
Said Hidda
Thu, 10 May 2007 15:20

first << prev | Pages : 1 2 3 4 | next >> last